
Vargar í véum
Um bókina
Dauðir úlfar finnast í norður-sænskum skógi – með mannakjöt í maganum. Blóðugt uppgjör glæpagengja. Kaldrifjaður útsendari rússnesku mafíunnar mætir á svæðið. Og hvað varð um alla peningana og dópið? Lögregluliðið í landamærabænum Haparanda kann að fást við smáglæpamenn, veiðiþjófa og dópista en hér er við öllu svæsnari glæpamenn að eiga og það er ljóst að þetta verður ekkert venjulegt sumar. Síst af öllu fyrir miðaldra lögreglukonuna Hönnu Wester, sem stríðir líka við alls konar flækjur í einkalífinu. Og þegar launmorðinginn Katja birtist fara minningar um atburði úr fjarlægri fortíð Hönnu að láta á sér kræla …
Hans Rosenfeldt hefur getið sér alþjóðlega frægð sem handritshöfundur sjónvarpsþáttaraðarinnar Brúin og hefur skrifað vinsælar glæpasögur í félagi við Michael Hjorth. Nanna Brynhildur Þórsdóttir þýddi og hér birtist hún í frábærum lestri Þórunnar Lárusdóttur.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
- Eða kauptu á 1.990 kr
Sækja app