Heim › ...
Vakir þú? eftir Jón Kalman Stefánsson - hljóðbók

Vakir þú?

0
Benedikt bókaútgáfa

Um bókina

Nú breytist allt.

Barið er að dyrum um heita sumarnótt og atlot elskenda trufluð með skelfilegum tíðindum; bróðir konunnar hefur verið myrtur. Fregnin rekur hana og elskhuga hennar af stað í afdrifaríkasta ferðalag veraldarsögunnar, þar sem tekist er á um líf og dauða, ást og ofbeldi, og vilja mannsins andspænis guði.

Mörgum öldum síðar bíður maður í fjölbýlishúsi í Vesturbæ Reykjavíkur eftir pípulagningamanni til að skipta um klósett. Hann er ásóttur af minningum og hugsunum um kærleikann og syndina; nágrannar hans eiga erindi við hann, kirkjufeðurnir sækja að honum og í Airbnb-íbúðinni handan götunnar bíða Adam og Eva eftir svari Útlendingastofnunar við hælisumsókn þeirra. En margt getur gerst, dánir menn lifnað við, heitavatnsrör sprungið og eitthvað hræðilegt er í vændum.

Þetta er skáldsaga úr samtímanum en þó byggð á ævi frægustu persónu mannkynssögunnar, uppgjör við guð og menn, en líka það fegursta og versta í okkur sjálfum.

„Við lestur sumra bóka vaknar eitthvað innra með manni sem maður vill í lengstu lög halda vakandi.“

- The New Yorker um Himnaríki og helvíti

Hvernig virkar þetta?

  1. 1
    Kauptu bókina

    Greiddu einu sinni og bókin er þín að eilífu óháð áskriftarstöðu

  2. 2
    Sæktu Sagnaland appið

    Fáanlegt í App Store og Google Play

  3. 3
    Hlustaðu hvar sem er

    Bókin birtist í bókahillunni þinni