
Uppsprettan
Um bókina
Uppsprettan (The Fountainhead) er einhver áhugaverðasta skáldsaga allra tíma og víst er að engin bók hefur fengið jafn marga til að leggja stund á arkitektúr. Bókin fjallar um tvo menn sem leggja stund á arkitektúr og spannar hún feril þeirra í New York. Þá eru þeir báðir á eftir sömu stúlkunni. Uppsprettan hefur selst í um sjö milljónum eintaka og hafa sálfræðingar mælt mjög með lestri bókarinnar fyrir þá sem vilja byggja upp sjálfstraust. Að mörgu leyti er eins og að þessi bók hafi verið skrifuð í gær þar sem efnistökin eru tímalaus.
Margir verða hugfangnir af lestri Uppsprettunnar enda eru sögupersónurnar eftirminnilegar og til er fólk sem les bókina á hverju ári. Höfundur bókarinnar er Ayn Rand, sem er einhver athyglisverðasti rithöfundur 20. aldar. Þýðandi bókarinnar er Þorsteinn Sigurlaugsson og lesari er Rúnar Freyr Gíslason.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app