
Uppskrift að jólum
Um bókina
Clara hefur alltaf þráð að eiga jól í faðmi ástvina og fjölskyldu, umvafin hlýju og gómsætum mat. Svo að þegar nýi kærastinn hennar biður hana að flytja með sér til Sviss, getur hún ekki annað en sagt já! Því að hvað gæti verið fullkomnara en jól í Ölpunum? Hún flýtir sér að skrá sig á freistandi námskeið í súkkulaðigerð en svo kemur í ljós að það eru hálfgerðar súkkulaði-þrælabúðir! Og kærastinn reynist ekki heldur allur þar sem hann er séður. Þrátt fyrir allt byrjar Clara að eignast vini – að meðtöldum hinum fáláta en forvitnilega Gabriel.
Nú hefur hún öll nauðsynleg innihaldsefni við höndina – mun henni þá loks takast að láta jóladrauminn rætast? Takið eina konu sem þráir hin fullkomnu jól, bætið við ýmsu sem kemur á óvart og njótið töfrandi hátíðargleði!
Þetta er önnur jólabók breska rithöfundarins Jo Thomas sem kemur út á íslensku en bækur hennar njóta mikilla vinsælda hérlendis. Hún skrifar rómantískar bækur um mat, ást, fjölskyldu og skemmtun. Bókum Jo Thomas hefur verið lýst sem „einu stóru faðmlagi.“ Ef þú ert að leita að einhverju „björtu og fyndnu“ er þetta bók fyrir þig.
Hér í frábærum lestri Kristínar Pétursdóttur. Þýðandi Herdís M. Hübner.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app