Heim › ...
Uppgjör bankamanns eftir Lárus Welding - hljóðbók

Uppgjör bankamanns

10 klst 32 mín
Bókafélagið

Um bókina

Lárus Welding náði á skömmum tíma miklum frama í íslensku fjármálalífi. Þrítugur var hann orðinn forstjóri Glitnis banka, alþjóðlegs banka með starfsemi víða um heim. Sautján mánuðum síðar, í október 2008, féll bankinn með látum. Hann vissi ekki þá að framundan væri rúmlega áratugs löng barátta í íslenska réttarkerfinu þar sem ákæruvaldið gekk mjög hart fram á meðan Lárus gaf allt sitt í vörnina. Frásögn Lárusar er hispurslaus og hreinskilin um ris, fall og upprisu hæleikaríks bankamanns. Hún gefur einnig mikilsverða sýn á hlið þeirra sem störfuðu í fjármálakerfnu.

Hann hlífir ekki sjálfum sér í þessari mögnuðu og lipurlega skrifuðu bók. Lárus varpar ljósi á efnahagshrunið og tengsl þess við hina alþjóðlegu fjármálakreppu. Hann bendir jafnframt á ýmislegt sem aflaga fór innan íslenska réttarkersins í tengslum við eftirleik hrunsins en Íslendingar, einir þjóða, fóru markvisst á eftir starfsmönnum bankanna. Lesari er Björn Hlynur Haraldsson.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán