Heim › ...
Unglingur til sölu eftir Samantha Owens - hljóðbók

Unglingur til sölu

7 klst 6 mín
Lind & Co

Um bókina

Hin 13 ára gamla Samantha Owens frá Sheffield varð umkomulaus unglingur eftir að barnavernd brást henni ítrekað. Hún fluttist frá einni fósturfjölskyldu til annarrar eftir að hafa hrökklast frá eigin heimili. Samantha hélt að hún hefði eignast góða vinkonu þegar hún kynntist hinni lífsreyndu Amöndu Spencer. Amanda var eldri og keypti handa henni föt, gerði hárgreiðslur í hana og fann henni samastað.

En Amanda bar hag Samönthu ekki fyrir brjósti, hún var í raun að leiða hana út á braut hræðilegrar misnotkunar. Á örfáum mánuðum var Samantha neydd til að neyta áfengis og fíkniefna og Amanda seldi hana til yfir fimmtíu karlmanna.

Eftir margar nauðganir, misnotkun og frelsissviptingu, varð Samantha undir hælnum á hinni klóku, miskunnarlausu og ógnvekjandi Amöndu. Það tók lögregluna tvö ár að koma Amöndu og fylgdarliði hennar fyrir rétt, árið 2014 var hún dæmd í tólf ára fangelsi. Helstu gerendur í máli Samönthu enduðu á bak við lás og slá, þá loks öðlaðist hún viljastyrk og fékk tækifæri til að endurreisa líf sitt. Hin átakanlega saga Samönthu er óvæginn vitnisburður til þeirra sem telja að kynferðisofbeldi gegn börnum fylgi ákveðnu mynstri.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán