Heim › ...

Um bókina

Ólafur Ragnar Sigurðsson var nýráðinn lögregluþjónn í Vestmannaeyjum þegar eldgos hófst aðfaranótt 23. janúar 1973. Tilvera hans, eins og annarra Eyjamanna, snérist þá þegar í stað á hvolf. Við gosið héldu langflestir íbúar Eyja með hraði til lands en Ólafur Ragnar varð eftir ásamt öðrum lögreglumönnum og björgunaraðilum við skyldustörf. Næstu vikur skráði hann hjá sér minnisverða atburði, stóra og smáa, og eru þeir uppistaðan í þessari mögnuðu bók. Undir gjallregni er einstök og persónuleg frásögn sjónarvottar af miklum sögulegum atburðum.

Hún er saga af fólki sem tók hrikalegum náttúruhamförum af æðruleysi og þrautseigju í þeirri von að hægt yrði að byggja Eyjar á ný, eins og raunin varð. Hér er sagt frá fólki sem horfði á heimili sín hverfa undir hraun eða verða eldi að bráð en neitaði að gefast upp. Ólafur Ragnar naut aðstoðar Marý Lindu Jóhannsdóttur við skrif bókarinnar og eru aftast í henni minningabrot barna hans og systur um dagana og vikurnar eftir gos. Undir gjallregni er bók sem á ekki sinn líka og lætur engan ósnortinn.

Lesari er Jóhann Sigurðsson.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán