Heim › ...
Tvöfalt svikalíf unnusta míns: Hin fjölskyldan hans bjó í hálftima fjarlægð eftir Coleen Greenwood - hljóðbók

Tvöfalt svikalíf unnusta míns: Hin fjölskyldan hans bjó í hálftima fjarlægð

10 klst 23 mín
Lind & Co

Um bókina

Coleen Greenwood stóð í þeirri trú að ástin í lífi hennar væri fráskilinn slökkviliðsmaður að nafni James, sönn hetja og fullur af góðvild og samúð með öðrum. Það var ekki fyrr en eftir að hún trúlofaðist honum og þau eignuðust óvænt barn, sem hún komst að því að ekkert við hann var raunverulegt. Þar á meðal voru dæturnar tvær, krabbameinsgreiningin og ófrjósemisaðgerðin sem hann sagðist hafa farið í. Maðurinn sem Coleen elskaði var ekki til. Hann var ekki einu sinni slökkviliðsmaður, þrátt fyrir að hann kæmi heim í slökkviliðsbúningi, angandi af reyk.Hann hét í raun og veru Greg.

Hann var giftur, átti þrjá syni, og fjölskylda hans bjó í nálægum bæ.Það sem hófst sem hið fullkomna ástarævintýri breyttist í martröð sem einkenndist af stjórnsemi og blekkingum. Þetta er sönn saga konu sem bjó við misnotkun og svik manns sem tilbað sjálfan sig, og leið hennar að bata og réttlæti.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán