Heim › ...
Tuttugu ára ofsóknir eltihrellis eftir Johan Ekfeldt - hljóðbók

Tuttugu ára ofsóknir eltihrellis

5 klst 58 mín
Lind & Co

Um bókina

„Það eru aðeins þrjár leiðir út úr þessu: að hann deyi, að ég deyi – eða að hann verði loksins afhjúpaður og handtekinn.“„Til Ayse gröðu!“Ayse sleppir bréfinu niður á gólfið um leið og hún les fyrstu línurnar.Nærri fimm ár eru liðin frá fyrsta símtalinu og fjögur frá því fyrsta bréfið barst. Enn hefur hvorki henni né lögreglunni tekist að komast að því hver stendur á bak við ofsóknirnar.Hann veit hins vegar óhugnanlega mikið um hana.

Í grófum og ógeðfelldum bréfum lýsir hann nákvæmlega hverju hún klæddist við ákveðin tilefni og hvernig skapi dóttir hennar var í þegar þær gengu heim úr leikskólanum. Það er ljóst að hann er einhvers staðar í nágrenninu … en hvar?Eftir margra ára símtöl og sífellt grófari skilaboð fær ofsóknin nýja og hættulegri vídd. Maðurinn byrjar að krota klámfengin skilaboð á almannafæri og dreifa miðum með nafni hennar og símanúmeri, þar sem fullyrt er að hún selji kynlífsþjónustu.Tuttugu ára ofsóknir eltihrellis er átakanleg og sönn saga Ayse Johansson um líf í stöðugum ótta og óbærilegu álagi í nær tvo áratugi – og hvernig hún fann loks leiðina til frelsis.Ayse Johansson (f. 1977) býr í dag öruggu lífi með fjölskyldu sinni utan við Norrköping.

Þetta er hennar fyrsta bók.Johan Ekfeldt er rithöfundur og reyndur blaðamaður sem býr í Norrköping.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán