Heim › ...
Trúðu mér eftir Ryan Green - hljóðbók

Trúðu mér

4 klst 42 mín
Ugla útgáfa

Um bókina

SÖNN SAKAMÁL 12 Sönn saga af játningamorðingjanum Henry Lee Lucas. Trúðu mér er áhrifamikil frásögn af einu undarlegasta og hryllilegasta glæpamáli í sögu Bandaríkjanna. Sumarið 1983 var Henry Lee Lucas handtekinn fyrir óleyfilega byssueign. Lögreglan grunaði hann um aðild að hvarfi tveggja kvenna og notaði tækifærið til að þjarma að honum.

Eftir fjögurra daga gæsluvarðhald játaði Lucas að hafa myrt konurnar tvær. Í kjölfarið játaði hann að hafa myrt, nauðgað og limlest hundruð kvenna til viðbótar með vini sínum og elskhuga meðan hann var undir áhrifum satanísks sértrúarsafnaðar. Sagði hann satt? Lögreglunnar beið erfitt verk að sannreyna frásagnir hans. Rétt eins og í fyrri bókum skrifar Ryan Green á kraftmikinn og lifandi hátt eins og í bestu spennusögu. Ragnar Hauksson íslenskaði. „Ryan Green er ótrúlegur sagnamaður ... hann segir ekki aðeins söguna eins og hún gerðist heldur gerir lesandann nánast að þátttakanda í henni.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán