Heim › ...
Tíu skref eftir Bergsveinn Ólafsson - hljóðbók

Tíu skref

7 klst 11 mín
Sögur útgáfa

Um bókina

Fyrir nokkrum árum ákvað knattspyrnumaðurinn og sálfræðineminn Bergsveinn Ólafsson að setjast niður og kortleggja á tveimur vikum hvað einkenndi innihaldsríkt líf. Ekki leið á löngu uns hann áttaði sig á að þetta yrði mögulega stærsta verkefni hans í lífinu. Það vakti talsverða athygli þegar Bergsveinn, sem hafði átt mikilli velgengni að fagna í íþrótt sinni, ákvað síðan að fylgja hjartanu og leggja skóna á hilluna skömmu fyrir mót. Með ástríðuna og kunnáttu úr jákvæðri sálfræði að vopni hefur Beggi nú kortlagt tíu skref í átt að innihaldsríku lífi. Bók sem á sannarlega erindi við alla.

„Þessi bók er einlæg lýsing á því hvernig unnt er að öðlast tilgang í lífinu. Hún er rituð af þroska og óvenju næmu innsæi, og er sönn áminning um það að lífið er lærdómsferli þar sem mikilvægast er að njóta ferðarinnar í stað þess að einblína á útkomuna.

Bergsveinn lýsir á bæði gagnreyndan og fallegan hátt hvernig við getum tekið stjórn á eigin lífi og setur fram leiðir um hvernig við getum, skref fyrir skref, farið í gegnum þá vinnu sem við þurfum að leggja á okkur til að ná markmiðum okkar. – Skyldulesning fyrir fólk á öllum aldri og öllum þroskastigum lífsins. Kærkomin gjöf þeim sem eru tilbúnir að opna bæði huga og hjarta og leggja á sig vinnu til að bæta eigið líf.“

- Inga Dóra Sigfúsdóttir prófessor við HR og Columbia-háskóla.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán