
Þú sérð mig ekki
Höfundur: Eva Björg Ægisdóttir
Flytjandi: Sigríður Láretta Jónsdóttir, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Þórey Birgisdóttir, Haraldur Ari Stefánsson, Guðmundur Ingi Þorvaldsson og María Dögg Nelson
Um bókina
Snæbergsfjölskyldan er efnamikil, voldug og virt í samfélaginu. Allt virðist leika í lyndi, en þegar stórfjölskyldan sameinast í tilefni af afmæli ættföðurins á nýju hóteli á Snæfellsnesi koma brestir í ljós. Rifið er ofan af gömlum sárum og leyndarmál fortíðarinnar leita upp á yfirborðið. Á meðan veisluhöldin standa sem hæst versnar veðrið og í gegnum hríðina heyrast skelfileg öskur.
Eva Björg Ægisdóttir hefur á fáum árum skipað sér í framvarðasveit íslenskra glæpasagnahöfunda. Marrið í stiganum hlaut virtustu glæpasagnaverðlaun Bretlands sem frumraun ársins 2021. Útgáfurétturinn á bókum hennar hefur verið seldur víða um lönd, meðal annars til Þýskalands þar sem öll helstu forlög landsins bitust um að fá að gefa bækurnar út.
Þú sérð mig ekki birtist hér í frábærum lestri Haralds Ara Stefánssonar, Guðmundar Inga Þorvaldssonar, Maríu Daggar Nelson, Sigríðar Lárettu Jónsdóttur og Þóreyjar Birgisdóttur.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app