Heim › ...
Þú ringlaði karlmaður - Tilraun til kerfisuppfærslu eftir Rúnar Helgi Vignisson - hljóðbók

Þú ringlaði karlmaður - Tilraun til kerfisuppfærslu

7 klst 34 mín
Græna húsið, útgáfan okkar

Um bókina

Aðalpersónan í þessari sannsögu er höfundurinn sjálfur á ýmsum þroskastigum. Í kjölfar #metoo og eigin tilvistarglímu ákvað hann að takast á við kynjaumræðu samtímans. Úr varð þetta rit þar sem hann teflir nýjustu rannsóknum gegn aldagömlu tregðulögmáli í samfélaginu en þó kannski ekki síst í honum sjálfum.

Höfundur gerir hér upp karlmennskuhugmyndir mótunaráranna um leið og hann mátar sjálfsmynd sína við þær áherslur sem nú eru efstar á baugi þegar kemur að karlmönnum, karlmennsku og samskiptum kynjanna.

Bók sem vakið hefur mikla athygli og höfðar til allra þeirra sem vilja skoða kynjaumræðuna frá sjónarhóli karlmanns.

„Slagkrafturinn leynir sér ekki í einstöku bókmenntaverki sem markar einnig tímamót á sviði samfélagsumræðu!" – Birna Bjarnadóttir bókmenntafræðingur

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán