
Þegar karlar stranda – og leiðin í land
Höfundur: Sirrý Arnardóttir
Flytjandi: Sirrý Arnardóttir
Um bókina
Kulnun, örmögnun, streita og alvarleg áföll hafa á undanförnum árum gert það að verkum að æ fleiri lenda í ógöngum og hrekjast jafnvel af vinnumarkaði. Og þetta á bæði við um karla og konur. Karlar tala síður en konur um það hvernig þeim líður. Þeir velja margir hverjir að bíta á jaxlinn og bera harm sinn í hljóði.
Sirrý Arnardóttir hefur tekið viðtöl við karlmenn á ólíkum aldri, úr ólíkum áttum og með mismunandi stöðu í samfélaginu og veita þau einstaka innsýn í líf þeirra og líðan. Þeir eiga það allir sameiginlegt að hafa strandað og upplifað verulega vanlíðan. Þeir gátu ekki unnið og voru við það að sökkva. En þeir gripu til aðgerða, fóru að vinna í sínum málum og komust í land.
Í bókinni er einnig fjallað um það hvernig karlmenn fyrri tíma brugðust við örmögnun og áföllum og rætt við sálfræðing og félagsráðgjafa um veruleika þeirra sem stranda í lífinu. Bókin er gefin út í samvinnu við VIRK – starfsendurhæfingarsjóð.
Áður hefur Sirrý sent frá sér bókina Þegar kona brotnar – og leiðin út í lífið á ný sem mæltist afar vel fyrir.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app