Heim › ...
Þar sem brimaldan brotnar eftir Guðrún frá Lundi - hljóðbók

Þar sem brimaldan brotnar

15 klst 33 mín
Hljóðbók.is

Um bókina

Jóhann er staðráðinn í að komast yfir jörð í Húnanesi enda þótt flestum finnist þar fáskrúðugt og útúrborulegt. Með klækjum og vinnusemi tekst það og eftir að hafa slitið fyrstu trúlofuninni með látum sest yngri kona, Þórey, í húsmóðursætið. Eftirlætissonurinn Hallur er þeim ánægjuefni en hið sama verður ekki sagt um hinn soninn, Gunnar.

En það á eftir að breytast eins og svo margt annað á jörðinni Látravík þar sem brimaldan brotnar á skerjum rétt fyrir neðan túnið.Þetta er fyrri bókin af tveimur um lífið í Látravík. Hér eins og svo oft áður tekst Guðrúnu frá Lundi að fanga hug og hjörtu lesenda á sinn einstaka hátt, með því að gæða persónur sínar lífi svo lesandinn hverfur meira en heila öld aftur í tímann. Hún sendi frá sér sextán skáldsögur alls, sumar í mörgum bindum, og var áratugum saman einn alvinsælasti höfundur landsins.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán