
Það sem eftir er
Höfundur: Virginie Grimaldi
Flytjendur: Berglind Alda Ástþórsdóttir, Árni Lárusson, Arndís Hrönn Egilsdóttir
Þýðandi: Guðrún Vilmundardóttir
Um bókina
Ekkja, ungur heimilislaus maður og kona á flótta undan tilvonandi eiginmanni. Hvað getur þetta þríeyki átt sameiginlegt?
Jeanne er 74 ára og nýorðin ein. Hún situr eftir með sorgina og hundinn Boudine í stóru Parísaríbúðinni sem hún hefur ekki efni á. Théo þorir ekki lengur að láta sig dreyma um framtíðina þar sem hann sefur í neðanjarðarlestinni eða í gömlu bílflaki. Í grænni ferðatösku er það litla sem Iris á. Ótraust húsnæði og illa launað starf eru nýi veruleikinn hennar.
Lífið er stundum erfitt, en getur líka verið svo magnað. Því þegar Jeanne ákveður að leigja Théo og Irisi herbergi bætir hún ekki aðeins eigin fjárhag, heldur verður líf þeirra aldrei samt.
Áhrifamikil og hjartnæm saga skrifuð af næmni um lífið eins og það er: brothætt og fyndið, hugljúft og átakanlegt og fullt af óvæntum augnablikum.
Virginie Grimaldi er einn mest lesni höfundur Frakklands og skáldsögur hennar hafa verið þýddar á yfir 20 tungumál.
Efnisorð
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app