Heim › ...
Teiknimyndaránið eftir Ævar Þór Benediktsson - rafbók

Teiknimyndaránið

Rafbók
Mál og menning

Um bókina

Halli og Tóti gera allt saman; þeir sitja hlið við hlið í skólanum, hanga saman eftir skóla, gista hvor hjá öðrum, spila tölvuleiki langt fram á nætur og horfa á bestu teiknimynd í heimi, Bankaránið, aftur og aftur og aftur!

En þegar Tóti tilkynnir Halla að hann muni flytja til Svíþjóðar sumarið fyrir 7. bekk hrynur veröldin. Vinirnir munu ekki einu sinni ná að horfa saman á framhaldið af Bankaráninu áður en Tóti fer! Ja, ekki nema Halli nái að fremja hið fullkomna rán …

Ævar Þór Benediktsson hefur skrifað fjölmargar bækur og talsett enn fleiri teiknimyndir. Hann rændi einu sinni Tópas-pakka úr sjoppu og skammast sín enn fyrir það. Það skal þó tekið fram að sjoppan hafði verið lokuð í meira en hálft ár.

Rán Flygenring hefur bæði skrifað og teiknað myndir í ótalmargar bækur. Hún rændi einu sinni gaffli úr búð og sá svo eftir því að hún notaði hann aldrei.

Hvernig virkar þetta?

  1. 1
    Kauptu bókina

    Greiddu einu sinni og bókin er þín að eilífu óháð áskriftarstöðu

  2. 2
    Sæktu Sagnaland appið

    Fáanlegt í App Store og Google Play

  3. 3
    Lestu hvar sem er

    Bókin birtist í bókahillunni þinni

-15%2.790 kr fyrir áskrifendur. Áskrifendur fá 15% afslátt af öllum bókum.