
Talið niður til jóla
Um bókina
Talið niður til jóla er fullkomin notaleg jólalesning. Hlý rómantísk saga sem segir frá Chloë sem getur ekki beðið eftir að jólin líði hjá. En óvænt símtal breytir öllu. Chloë er hugsanlega orðin eigandi af landspildu í Kanada!
Á augabragði er hún farin að telja niður til jóla í snæviþökktum bjálkakofa inni í skógi í samfélagi sem hefur áhyggjur af framtíðinni. Hranarlegur skógarhöggsmaður kippir undan henni fótunum og þar eru staflar af hlynsírópi.
Þetta er fyrsta bók breska rithöfundarins Jo Thomas sem kemur út á íslensku en bækur hennar njóta mikilla vinsælda erlendis og fá jafnan afar góða dóma. Hún skrifar rómantískar bækur um mat, ást, fjölskyldu og skemmtun. Bókum Jo Thomas hefur verið lýst sem „einu stóru faðmlagi.“ Ef þú ert að leita að einhverju „björtu og fyndnu“ er þetta bók fyrir þig.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app