
Um bókina
Er hægt að fremja morð … án þess að muna eftir því?
Lögreglan svarar neyðarkalli um að verið sé að fremja glæp á tjaldstæði Bredäng, rétt utan við Stokkhólm. Í hjólhýsi á staðnum blasir við þeim hryllileg sjón: Maður hefur verið myrtur með exi og limlestur af ólýsanlegri grimmd. Í næsta herbergi sefur hinn 17 ára gamli Hugo Sand á gólfinu. Hann þjáist af skelfilegum martröðum, gengur í svefni – og segist ekki hafa hugmynd um hvað átti sér stað í hjólhýsinu þessa nótt. Er Hugo gerandi, vitni eða blóraböggull morðingjans? Lögregluforinginn Joona Linna leitar til dáleiðara í von um að komast að því.
Lars Kepler er hér í banastuði, frásögnin er grípandi og hröð og vendingar ófyrirsjáanlegar. Svefngengillinn var mest selda bókin í Svíþjóð árið 2024 og bækurnar um Joona Linna hafa selst í meira en 20 milljónum eintaka um víða veröld.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app









