Heim › ...
Svarthol - Hvað gerist ef ég dett ofan í? eftir Sævar Helgi Bragason - hljóðbók

Svarthol - Hvað gerist ef ég dett ofan í?

1 klst 36 mín
JPV

Um bókina

Svarthol eru einhver furðulegustu fyrirbæri alheimsins. Svo ofboðslega stór og ótrúlega sterk, en samt algerlega ósýnileg! Hvernig getur það verið? Og hvernig vitum við þá að þau eru til? Getum við lent í því að svarthol gleypi okkur fyrirvaralaust? Og hvað skyldi gerast ef manneskja steypist ofan í svarthol?

Í þessari bráðnauðsynlegu og stórfróðlegu bók leitast Sævar Helgi Bragason við að svara öllu þessu þannig að allir skilji, um leið og hann segir frá því hvernig svarthol uppgötvuðust og útskýrir hvernig þau virka. Þau eru sannarlega dularfull – en alls ekki svo óskiljanleg! Og kannski er best að segja það strax: það er eiginlega bara alls engin hætta á að maður detti ofan í!

Sævar Helgi er landsþekktur stjörnuskoðari og hefur verið einstaklega ötull við að fræða börn og fullorðna um himingeiminn og þau heillandi vísindi sem honum tengjast. Hann hefur skrifað vinsælar bækur um stjörnuskoðun, geimvísindi – og geimverur!

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán