Heim › ...
Svartfugl eftir Gunnar Gunnarsson - hljóðbók

Svartfugl

9 klst 11 mín
Hljóðbók.is

Um bókina

Svartfugl er magnað skáldverk og af mörgum talin albesta bók Gunnars Gunnarssonar. Bakgrunnurinn eru Sjöundármorðin, einhver umtöluðustu morðmál Íslandssögunnar, en jafnframt er dregin upp skörp mynd af íslensku samfélagi um aldamótin 1800, stéttskiptingu, blindri réttvísi kirkju, konungs og embættismanna og harðneskjulegum aðstæðum alþýðunnar. Svartfugl segir mikla sögu af mögnuðu fólki. Klassískt verk sem talar til nýrra tíma á nýjan hátt.Verk Gunnars Gunnarssonar (1889-1975) nutu fádæma vinsælda í Evrópu á síðustu öld.

Bækur hans voru þýddar á tungur stórþjóða um leið og þær komu út í Danmörku þar sem hann var metsöluhöfundur.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán