Heim › ...
Sumarhrollur eftir Quentin Bates - hljóðbók

Sumarhrollur

Höfundur: Quentin Bates

Flytjandi: Hjálmar Hjálmarsson

Þýðandi: Helgi Ingólfsson

5 klst 5 mín
Ugla útgáfa

Um bókina

Glæpasaga sem gerist á Íslandi.

Í sumarlok verður meinleysislegur smiður, sem stundum tekur að sér verkefni á mörkum gráa hagkerfisins, aðgangshörðum handrukkara að bana í nauðvörn og felur líkið. Handrukkarans er saknað, mannshvarf tilkynnt til lögreglu og rannsóknarlögreglumennirnir Gunnhildur og Helgi fá málið í sínar hendur.

En hinn horfni átti einnig sína félaga úr undirheimum sem nú vilja jafna metin og einn þeirra fer að leita að morðingjanum. Brátt er lögreglan á hælum beggja manna en smiðurinn er alltaf skrefinu á undan. Mun hann sleppa úr netinu sem stöðugt þrengist að honum?

Sumarhrollur er fimmta bókin um lögregluforingjann Gunnhildi sem kemur út á íslensku. Fyrri bækurnar fjórar – Á hálum ís, Bláköld lygi, Helköld illska og Kuldagustur – hafa fengið hinar bestu viðtökur.

Enski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Quentin Bates hefur tekið ástfóstri við Ísland og sögusvið allra glæpasagna hans er á Íslandi.

„Glæpasögur í hæsta gæðaflokki, vel skrifaðar, snjall söguþráður og sannfærandi lýsingar á vinnubrögðum lögreglu.“ – The Times

„Fangar hinn kalda anda norrænu glæpasögunnar ... Aðdáendur Arnaldar Indriðasonar munu vilja bæta Quentin Bates á leslistann.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán