
Sumar í Ísbúð Valentinos
Um bókina
Það er kominn tími til að hefja nýtt líf … Beca hefur rekið eigið fyrirtæki í borginni í áratug en nú þráir hún rólegra líf. Þegar hún sér draumahúsið sitt auglýst til sölu á æskuslóðunum, virðast örlögin ráðin.
Þegar hún í gamla bæinn sinn fer hún í ísbúð afa síns og ömmu. Þá sér hún sér til skelfingar að nýi eigandinn, Ed, fyrrverandi kærasti hennar, hefur gerbreytt búðinni svo ekkert minnir á fyrri eigendur. Beca er ákveðin í að halda ísgerðararfleifð fjölskyldunnar í heiðri svo að hún ákveður að fetar í fótspor þeirra. Hún fer að búa til dásamlegan ís með hjálp löngu gleymdrar uppskriftabókar og opnar ísbúð í bátaskýli. Samkeppnin verður æ harðskeyttari og Beca leitar aðstoðar hjá Griff, æskuvini sínum til að láta ísbúðina ganga.
En mun Beca uppgötva þegar til kastanna kemur að hin sanna hamingja hefur verið beint fyrir framan hana allan tímann? Þetta er þriðja bók breska rithöfundarins Jo Thomas sem kemur út á íslensku en bækur hennar njóta mikilla vinsælda erlendis og fá jafnan afar góða dóma. Hún skrifar rómantískar bækur um mat, ást, fjölskyldu og skemmtun. Bókum Jo Thomas hefur verið lýst sem „einu stóru faðmlagi.“ Ef þú ert að leita að einhverju „björtu og fyndnu“ er þetta bók fyrir þig.
Hér í frábærum lestri Svandísar Dóru Einarsdóttur.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app