
Stund úlfsins
Um bókina
Vopnasali er skotinn í kviðinn á götu í Minneapolis; leyniskytta hefur setið fyrir honum. Bob Oz rannsóknarlögreglumaður er í meiri háttar vandræðum í starfi og einkalífi, en hann kann sitt fag og er snöggur að komast á slóð byssumannsins sem virðist vera einn að verki og eiga harma að hefna.
Skyttan lætur aftur til skarar skríða og Bob fer að skynja samhengi og sögu; boðskap sem morðinginn vill koma á framfæri. Það sem meira er, sú saga endurómar líf hans sjálfs og þeir hugsa á sömu nótum, hann og sá sem hann er að elta. Bob verður að líta í eigin barm en því dýpra sem hann skyggnist, þeim mun skelfilegra verður það sem hann sér.
Jo Nesbø er heimsþekktur fyrir frábærar glæpasögur sínar. Hér rýnir hann í samfélag á heljarþröm, gegnsýrt af ofbeldi og spillingu, og fólkið sem þar hrærist.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app