Heim › ...
Stúlka með fálka: Skáldævisaga – Fullorðinsminningar eftir Þórunn Valdimarsdóttir - rafbók

Stúlka með fálka: Skáldævisaga – Fullorðinsminningar

Rafbók
JPV

Um bókina

Stúlka með fálka er sjálfstætt framhald bókanna Stúlku með fingur, Stúlku með maga og Stúlku með höfuð þar sem Þórunn Valdimarsdóttir sagnfræðingur og rithöfundur rekur eigin ættarsögu og ævi. Hér stendur stúlkan á sjötugu og lítur um öxl, sögutíminn frá miðjum níunda tug síðustu aldar til dagsins í dag. Staldrað er við ritverkin og atvik úr einkalífi, ferðalög, vini, fjölskyldu og aðra sem haft hafa áhrif á þennan einstaka höfund.

Þetta er samtímasaga full af visku og vangaveltum um lífið og tilveruna. Sem fyrr er Þórunn hispurslaus og opinská og hlífir sér hvergi – frásögnin er fyndin og gáskafull en um leið blandin trega og söknuði.

Þórunn Valdimarsdóttir er einn fjölhæfasti rithöfundur okkar, jafnvíg á skáldskap og fræði og hefur fengist við flestar greinar bókmennta. Hún hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir verk sín og meðal annars verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

Kynning

Hvernig virkar þetta?

  1. 1
    Kauptu bókina

    Greiddu einu sinni og bókin er þín að eilífu óháð áskriftarstöðu

  2. 2
    Sæktu Sagnaland appið

    Fáanlegt í App Store og Google Play

  3. 3
    Lestu hvar sem er

    Bókin birtist í bókahillunni þinni

-15%3.390 kr fyrir áskrifendur. Áskrifendur fá 15% afslátt af öllum bókum.