
Um bókina
Klukkan 07.45 að morgni miðvikudagsins 19. maí 1999 hófst aðgerðin „Hestur“ með því að Atle Hamre tamningamaður og vagnökumaður var handtekinn.
Efnahagsbrotadeild ríkislögreglunnar og fleiri deildir höfðu í nokkrar vikur unnið að rannsókn málsins ásamt lögreglunni í Sandefjord og Larvik en málið var stærsta og umfangsmesta fjárkúgunarmál sem þá hafði verið rannsakað í landinu. Næstu daga þróaðist málið enn frekar og reyndist ekki eiga sér hliðstæðu í Noregi. Að lokum var Atle Hamre dæmdur til þungrar refsingar fyrir að hafa staðið á bak við fjárkúgun upp á 28 milljónir norskra króna.
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app