
Um bókina
Nokkrum dögum fyrir aðfangadagskvöld finnast eldri hjón myrt á hrottalegan hátt á heimili sínu fyrir utan bæinn Hagfors. Við fyrstu sýn virðist um að ræða rán sem hefur farið úrskeiðis en frekari rannsókn lögregluparsins Berglund og Wilander leiðir í ljós undarlega og óþægilega málavexti. Blaðakonan Magdalena Hansson er komin aftur til vinnu eftir langt veikindaleyfi og verður fljótlega þátttakandi í æsilegri morðrannsókn sem skekur bæinn. Elín Guðmundsdóttir íslenskaði. Stóra stundin er sjálfstæð bók í hinni margrómuðu Hagfors-seríu eftir sænsku glæpasagnadrottninguna Ninni Schulman.
Hún er sjötta bókin sem kemur út eftir hana á íslensku. Hinar eru Stúlkan með snjóinn í hárinu, Leyndarmálið okkar, Velkomin heim, Þegar allar hklukkur stöðvast og Bara þú sem allar hafa fengið frábærar viðtökur íslenskra lesenda.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app