Heim › ...
Sterkasta kona í heimi eftir Steinunn G. Helgadóttir - hljóðbók

Sterkasta kona í heimi

5 klst 48 mín
Forlagið

Um bókina

Systkinin Gunnhildur og Eiður eru valdalausir samherjar í fjölskyldu þar sem foreldrarnir eru aldrei glaðir samtímis. Þegar fjölskyldan sundrast eru systkinin skilin að sem litar allt þeirra líf – Eiður verður friðsamur hugsjónamaður sem þráir að láta gott af sér leiða en Gunnhildur, sem býr yfir ofurkröftum þótt hún flíki þeim ekki, menntar sig í förðun og verður eftirsóttur líksnyrtir. Sagnagáfa Steinunnar G. Helgadóttur er ótvíræð. Lesendur Radda úr húsi loftskeytamannsins og Samfeðra kannast vel við að flissa á einni síðu, klökkna á þeirri næstu og vaka alveg óvart allt of lengi fram eftir við lestur.

Sterkasta kona í heimi er áhrifamikil fjölskyldusaga um leitina að hamingjunni, breyskleika og óvænta krafta.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 3.490 kr