Heim › ...
Spænska ástarblekkingin eftir Elena Armas - hljóðbók

Spænska ástarblekkingin

Höfundur: Elena Armas

Flytjandi: Þórunn Erna Clausen

14 klst 54 mín
Forlagið

Um bókina

Catalina þarf að fara frá New York alla leið til Spánar til að mæta í brúðkaup systur sinnar. Kærastanum hennar er boðið líka, vandinn er bara sá að það er enginn kærasti – hún bjó hann til! Þegar Aaron, stífi og leiðinlegi vinnufélaginn sem hún þolir ekki, býðst til að koma með henni ákveður hún því að láta á það reyna. Þau hafa alltént þrjá daga til að sannfæra fjölskylduna um að þau séu brjáluð hvort í annað …

Elena Armas er spænskur höfundur og upphaflega gaf hún sjálf út þessa rómantísku ástarsögu. Þegar bókin sló rækilega í gegn á Book-Tok tóku hins vegar stóru forlögin við sér. Síðan hefur bókin farið sigurför um heiminn.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra . Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán