Heim › ...
Sonurinn eftir Michael Rostain - hljóðbók

Sonurinn

5 klst 14 mín
Ugla útgáfa

Um bókina

Þessi bók fjallar ekki um dauðann – þetta er bók um lífið!

Þessi hrífandi skáld-ævisaga varð metsöubók í Frakklandi eftir að hún hreppti hin virtu Concourt-verðlaun fyrir fyrstu skáldsögu árið 2011 og hefur síðan verið þýdd á fjölda tungumála.

Í bókinni er fjallað með frumlegum og snjöllum hætti um eitt hræðilegasta áfall sem hent getur foreldra – barnsmissi. Með einstakri hógværð og fáguðum næmleik leiðir Michael Rostain okkur inn í heim flókins sambands föður og sonar sem með hæðum sínum og lægðum raskar í engu skilyrðislausri ást foreldris til barns síns.

Sonurinn hefur sterka tengingu við Ísland sem birtist lesandanum á áhrifamikinn hátt undir lok bókarinnar.

Michel Rostain (f. 1942) er kunnur tónlistarleikhússtjóri og rithöfundur í Frakklandi. Hann býr í Arles.

„Virðingarvert. mannlegt og hrífandi verk.“ – The Sunday Times

„Sonurinn er bók uppfull af lífi, myrkum húmor og takmarkalausri ást. Hún hjálpar okkur að skilja hvernig við eigum að takast á við ofureflið og lifa með hinu ósegjanlega.“ – Jean-Marcel Bouguereau, ritstjóri Liberation

„Bæði hrífandi og nístandi ... höfundurinn fetar einstigið milli þess að vera ljúfsár og væminn, milli biturleika og gleði, minninga og skáldskapar.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán