
Snjósystirin
Um bókina
Júlían á afmæli á aðfangadag svo það er ekkert skrítið að jólin séu í uppáhaldi hjá honum. Yfirleitt er þetta besti dagur ársins; heimilið angar af piparkökum og mandarínum, það snarkar í arninum, allir eru í góðu skapi og fullir eftirvæntingar.
En andrúmsloftið í ár er öðruvísi en áður því Júní stórasystir hans dó í sumar. Fjölskyldan er þjökuð af sorg og Júlían heldur jafnvel að það komi engin jól. Dag einn í desember vingast hann við hina lífsglöðu Heiðveigu. Hún brosir breiðar en nokkur sem hann hefur kynnst, hlátur hennar er hár og smitandi og hún finnur upp á alls konar fjöri.
En það er eitthvað dularfullt við hús fjölskyldu hennar. Gamall og skuggalegur maður er þar oft á vappi – af hverju er hann svona reiður? Og hvað hefur Heiðveig að fela? Snjósystirin er hugljúf jólasaga í 24 köflum, ævintýraleg og heillandi bók fyrir alla fjölskylduna.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
- Eða kauptu á 1.990 kr
Sækja app