Heim › ...
Snjór í paradís eftir Ólafur Jóhann Ólafsson - hljóðbók

Snjór í paradís

6 klst 33 mín
Bjartur

Um bókina

Meginstef þessarar áhrifamiklu bókar eru nánustu sambönd fólks; hjóna, foreldra og barna, elskhuga og vina; og hvernig hið leyndasta í lífi sérhvers manns, það sem hugur einn veit, getur breytt öllu komi það upp á yfirborðið. Snjór í paradís er mögnuð bók um ást og von, blekkingu og afhjúpun, hliðarspor og heiðarleika.

Í bókinni er fjallað um ástríður og þráhyggju, djúpa ást í meinum og fengist við þær tilvistarspurningar sem allir glíma við: Er ást skilyrðislaus eða hvar liggja mörkin? Hversu lengi getur fortíðin komið í bakið á okkur? Skipta blóðbönd máli? Ólafur Jóhann Ólafsson hefur lengi verið einn ástsælasti rithöfundur þjóðarinnar og hafa bækur hans hrifið lesendur heima og erlendis. Kvikmynd byggð á skáldsögu hans, Snertingu, var frumsýnd sumarið 2024 og hefur fengið einróma lof gagnrýnenda.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán