
Um bókina
Hörkuspennandi saga um örvæntingarfullan föður á framandi slóðum, sex byssukúlur og úlfa í sauðargærum. Slóð sporðdrekans er æsispennandi, ögnarhrörð og heldur lesandanum í algerri óvissu til söguloka. Versta martröð dr. Gabríels Tuma Hreinssonar verður að veruleika þegar börnin hans hverfa sporlaust í fjölskyldufríi í Kostaríka. Hann sannfærist um að þau hafi verið numin á brott en lögreglan telur að þau hafi aðeins strokið og séu skammt undan. Gabríel verður því sjálfur að elta mannræningjana uppi.
Hann veit ekki af hverju börnunum var rænt eða hver var að verki en hann gerir hvað sem það kostar til að endurheimta þau. Það er það eina sem skiptir máli en hve langt má ganga til að vernda börnin sín? Frá höfundi Stóra bróður og Mannsins frá São Paulo.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app