
Sláturtíð
Höfundur: Gunnar Theodór Eggertsson
Flytjandi: Gunnar Theodór Eggertsson
Um bókina
Kvikmyndagerðarmaðurinn Ásbjörn Axel tekur að sér að hafa uppi á íslenskri baráttukonu fyrir réttindum dýra sem ekkert hefur spurst til síðan hún sat í fangelsi í Hollandi fyrir skemmdarverk. Leitin leiðir hann á vafasamar slóðir í litríkum félagsskap dýraréttindasinna í Evrópu og smám saman missir hann tökin bæði á verkefninu og sjálfum sér. Sláturtíð er meinfyndin og spennandi ferðasaga sem kemur lesandanum stöðugt á óvart og veltir jafnframt upp ýmsum hliðum á brýnu samfélagsmálefni. Gunnar Theodór Eggertsson hefur hlotið verðlaun og viðurkenningar fyrir barna-og unglingabækur sínar Steindýrin og Drauga- Dísu en nú er komið að því að hann bjóði fullorðnum lesendum í óvenjulega ævintýra-ferð.
Gunnar skrifaði doktorsritgerð sína um bókmenntir og dýrasiðfræði.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
- Eða kauptu á 1.990 kr
Sækja app