Heim › ...
Skugginn eftir Hildur Knútsdóttir - rafbók

Skugginn

Rafbók
Mál og menning

Um bókina

Tilvera Daggar er skyndilega komin á hvolf. Vinkonur hennar hafa snúið við henni baki, mamma hennar er komin með nýjan kærasta og nú stendur til að þær flytji ásamt honum og dóttur hans, Brynju, í gamalt hús í miðbænum. Þótt þær Brynja séu jafngamlar og báðar í Kvennó þekkjast þær ekkert – og Dögg finnst öruggast að halda því þannig.

Þau hafa ekki búið lengi í nýju íbúðinni þegar stelpurnar verða sannfærðar um að þar sé reimt. Foreldrarnir trúa þeim ekki svo þær ákveða að taka málin í sínar hendur, komast að því hver draugurinn er og hvað hann vill þeim. Þær kafa ofan í sögu hússins og eru brátt komnar á blóði drifna slóð látinna unglingsstúlkna. Ef þeim tekst ekki að leysa ráðgátuna gætu þær orðið næstar.

Hildur Knútsdóttir hefur verið einn vinsælasti unglingabókahöfundur landsins um árabil og hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir verk sín þar á meðal Íslensku bókmenntaverðlaunin, Fjöruverðlaunin og Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar.

Hvernig virkar þetta?

  1. 1
    Kauptu bókina

    Greiddu einu sinni og bókin er þín að eilífu óháð áskriftarstöðu

  2. 2
    Sæktu Sagnaland appið

    Fáanlegt í App Store og Google Play

  3. 3
    Lestu hvar sem er

    Bókin birtist í bókahillunni þinni

-15%2.790 kr fyrir áskrifendur. Áskrifendur fá 15% afslátt af öllum bókum.