Heim › ...

Um bókina
Á gistiheimili í miðbæ Reykjavíkur finnst erlendur karlmaður látinn. Engin persónuleg gögn eru í hótelherberginu, enginn farsími né heldur skýrar vísbendingar um hvert erindi mannsins var til Íslands. Hið eina sanna sem finnst er miði sem á stendur heimilisfang: Freydísargata 14. Í því húsi búa þrjár konur sem hver virðist hafa sinn djöful að draga.
Ármann Jakobsson hefur í glæpasögum sínum skapað frábært rannsóknarteymi og hér er það lögreglukonan Kristín sem axlar aukna ábyrgð í margslungnu sakamáli. En um leið stendur hún á krossgötum í eigin lífi.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app