Heim › ...
Skipreka eftir Beth O’Leary - rafbók

Skipreka

Höfundur: Beth O’Leary

Þýðandi: Halla Sverrisdóttir

Rafbók
Vaka-Helgafell

Um bókina

Lexi og Zeke kynnast á bar í litlum strandbæ í Norður-Englandi. Þau laðast hvort að öðru og ákveða að eiga saman eina rómantíska nótt í gömlum húsbáti í höfninni. Lexi finnst hún eiga skilið að skemmta sér með svona bráðmyndarlegum manni án allra skuldbindinga. Zeke samþykkir tilboðið þótt hann sé loksins tilbúinn að snúa baki við áralöngum skyndikynnum og farinn að leita að alvöru ástarsambandi.

Daginn eftir ástríðufulla nótt vakna þau þreytt og timbruð en uppgötva sér til skelfingar að húsbátinn hefur rekið langt frá landi. Til að sleppa lifandi úr þessum sjávarháska verða þau að snúa bökum saman en það reynir á að deila litlu rými með bláókunnugri manneskju. Smám saman kynnast þau betur en þurfa líka að takast á við ýmislegt óuppgert úr fortíðinni.

Halla Sverrisdóttir þýddi.

Hvernig virkar þetta?

  1. 1
    Kauptu bókina

    Greiddu einu sinni og bókin er þín að eilífu óháð áskriftarstöðu

  2. 2
    Sæktu Sagnaland appið

    Fáanlegt í App Store og Google Play

  3. 3
    Lestu hvar sem er

    Bókin birtist í bókahillunni þinni

-15%2.540 kr fyrir áskrifendur. Áskrifendur fá 15% afslátt af öllum bókum.