Heim › ...
Skipið úr Ísfirði eftir Nina von Staffeldt - hljóðbók

Skipið úr Ísfirði

10 klst 28 mín
Ugla útgáfa

Um bókina

Sika Halsund syrgir guðföður sinn sárt eftir að hann deyr í eldsvoða. Þegar kemur í ljós að um íkveikju var að ræða fer Sika að grafast fyrir um orsakirnar. Hún uppgötvar óvænt tengsl milli eldsvoðans, innbrots í Illulissat-kirkjuna og dularfulls andláts fjarri Grænlandi. Blaðamaðurinn Þormóður Gíslason reynist einnig vera að rannsaka málið en út frá öðrum forsendum.

Þegar þau Sika taka höndum saman komast þau á snoðir um eldfimmt leyndarmál sem kann að tengjast rannsóknum guðföður Siku á heimsstyrjaldarárunum síðari Grænlandi. Lára Sigurðardóttir íslenskaði. Skipið úr Ísfirði er þriðja bókin um Sika Haslund í sjálfstæðum flokki glæpasagna sem gerast á Grænlandi eftir danska rithöfundinn Ninu von Staffeldt. Fyrri bækurnar tvær eru Frosin sönnunargögn, sem hlaut verðlaun Det Danske Kriminalakademis sem besta frumraun ársins, og Svarti engillinn. „Sika Haslund er alvöru – hún er grænlensk, hún er dönsk, hún er pirrandi og stundum fyndin og stundum líka eiturskörp en hún er fyrst og fremst manneskja.

Og hún er frábær kynning á Grænlandi.“ – Politiken Ninu von Staffeldt hefur tekist „á sannfærandi hátt að skrifa Grænland inn í hið svokallaða Nordic Noir“.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán