Heim › ...
Skilnaðurinn eftir Moa Herngren - hljóðbók

Skilnaðurinn

9 klst 54 mín
Ugla útgáfa

Um bókina

Bea og Niklas hafa búið saman í þrjátíu ár í fínu hverfi í Stokkhólmi. Kvöld eitt, eftir ómerkilegt rifrildi, lætur Niklas sig hverfa. Bea á von á honum á hverri stundu með skottið á milli lappanna. En klukkustundirnar líða og svo dagarnir án þess að hann láti sjá sig. Reiðin sýður á Bea. Niklas hefur hins vegar engan áhuga á að koma aftur heim og krefst skilnaðar. En kom skilnaðurinn í rauninni eins og þruma úr heiðskíru lofti? Er manneskjan sem vill skilja alltaf sökudólgurinn? Hvað leynist undir yfirborðinu ef grannt er skoðað? Tilnefningar: Bók ársins í Svíþjóð 2022 Besta skáldsagan á Storytel í Svíþjóð 2022 Sænski metsöluhöfundurinn Moa Herngren (f.1969) er fyrrverandi aðalritstjóri Elle Magazine í Svíþjóð og eftirsóttur handritahöfundur. Hún er meðal annars meðhöfundur hinna vinsælu sjónvarpsþátta um Bónus-fjölskylduna.

„Herngren skrifar snilldarlega um sambönd og bældar tilfinningar. /.../ Henni tekst frábærlega að koma til skila ólíkum sjónarhornum og lýsa því hvernig litlir hversdagslegir hlutir geta orðið að óyfirstíganlegum hindrunum.“ – Smålandsposten „Með hrifningu í bland við skelfingu fylgjumst við með hvernig tilvist og öryggiskennd fjölskyldu hrynur. Afar vel skrifaður harmleikur þar sem enginn er saklaus.“ – Expressen „Í Skilnaðinum sýnir Moa Herngren báðar hliðar sem er sannarlega hressandi.“ – Uppsala Nya Toidning „Afar hæfileikarík.“ – Dagens Nyheter „Moa Herngren slær alveg rétta tóninn ... Hún er einstaklega fær í ... að lýsa samböndum, sérstaklega þegar þau eru undir álagi.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán