
Sjúkrahúsið
Um bókina
Barbara O'Hare var aðeins tólf ára gömul þegar hún var lögð inn á geðsjúkrahúsið Aston Hall árið 1971. En í stað þess að vera henni björgun frá erfiðum heimilisaðstæðum var það upphafið að nýrri og verri martröð. Þar varð hún fyrir kerfisbundnu líkamlegu og andlegu ofbeldi, og var notuð sem tilraunadýr í læknisfræðilegum „meðferðum“ sem áttu sér hvorki siðferðislegan né faglegan grundvöll.Forstöðumaður og yfirlæknir sjúkrahússins, dr. Kenneth Milner, misnotaði Barböru og mörg önnur börn kynferðislega og beitti þau skipulögðum pyndingum sem höfðu djúpstæð og varanleg áhrif..
Barbara O“Hare segir hér af miklu hugrekki frá örlögum sem hún deilir með ótal öðrum sjúklingum á Aston Hall og hvernig hún fann leið út úr áfallinu á fullorðinsárum. Þetta er sönn saga um skelfilegt ofbeldi á bak við luktar dyr stofnunar sem átti að hjálpa börnum og vernda og veita þeim þá umönnun sem þau þurftu.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app