Heim › ...
Sjálfstýring eftir Guðrún Brjánsdóttir - hljóðbók

Sjálfstýring

1 klst 45 mín
Forlagið

Um bókina

„Hérna sit ég, búin að snúa lífinu mínu á hvolf vegna nokkurra fingra á vitlausum stað í dálitla stund.“ Lífið virðist blasa við hæfileikaríkri, ungri konu. Hún á góða vini, ástríka fjölskyldu og er á leiðinni í spennandi inntökupróf við virtan tónlistarskóla erlendis.

En eftir það sem vinur hennar gerði í partíinu um jólin upplifir hún aðeins einkennilegan doða og tengslaleysi við sjálfa sig og sína nánustu. Sjálfstýring er grípandi samtímasaga sem fjallar á raunsannan hátt um afleiðingar ofbeldis og leiðina til baka út úr myrku herbergi. Sagan sigraði í samkeppni Forlagsins Nýjar raddir 2020.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.990 kr