Heim › ...
Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness - hljóðbók

Sjálfstætt fólk

24 klst 5 mín
Vaka-Helgafell

Um bókina

Sjálfstætt fólk er saga einyrkjans Bjarts í Sumarhúsum og veitir einstæða innsýn í líf íslensku þjóðarinnar á fyrri hluta aldarinnar. Þegar sagan kom fyrst út var hún glóandi innlegg í stjórnmálabaráttu samtímans og mjög umdeild, en telst nú til mestu dýrgripa í menningarsögu Íslendinga. Til að halda sjálfstæði sínu berst Bjartur í Sumarhúsum harðri baráttu við sjálfan sig, fjölskyldu sína, valdhafana og jafnvel höfuðskepnurnar.

Í bókinni eru þessi ályktunarorð dregin af lífsstríði hans: „Sagan af Bjarti í Sumarhúsum er saga mannsins, sem sáði í akur óvinar sins alt sitt líf, dag og nótt. Slík er saga sjálfstæðasta mannsins í landinu.“ Sjálfstætt fólk er í hópi vinsælustu skáldverka Halldórs Laxness og var kosin besta skáldsaga aldarinnar árið 1999. Sagan kom fyrst út á árunum 1934-35, í tveimur hlutum.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 2.490 kr