Heim › ...
Sítrónur og saffran eftir Kajsa Ingemarsson - hljóðbók

Sítrónur og saffran

9 klst 49 mín
Mál og menning

Um bókina

Agnes er komin í óskastöðu. Hún er orðin yfirþjónn á fínasta veitingastað Stokkhólms, sæti kærastinn hennar er frægur gítarleikari og hún á frábæra vinkonu sem styður hana í einu og öllu. En á einni kvöldstund breytist allt; hún er rekin úr vinnunni og kærastinn tekur bakröddina með risabrjóstin fram yfir hana. Agnes þarf að byrja aftur frá byrjun og læra sitthvað um ástina um leið og hún uppgötvar nýjar hliðar á vináttunni.

Sítrónur og saffran er bráðfyndin og dramatísk saga um sorgir og sigra, ástir og vináttu, mat og mannlíf eftir einn vinsælasta rithöfund Svíþjóðar. Kajsa Ingemarsson er þekkt dagskrárgerðar- og leikkona sem hefur þegar gefið sex skáldsögur og nýtur mikillar hylli í Skandinavíu.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.290 kr