Heim › ...
Silfurskildingurinn eftir H.C. Andersen - hljóðbók

Silfurskildingurinn

12 mín
Saga Egmont

Um bókina

Silfurskildingur nokkur kemur skínandi fagur í heiminn. Hann er hinn kátasti og hlakkar mjög til þess að fara um víða veröld, enda á það fyrir honum að liggja. Framan af ævinni fer hann glaður manna á milli, og kynnist þannig ólíkustu einstaklingum. En dag nokkurn vill svo til að hann er staddur í buddu manns, sem er á leið í ferð um fjarlæg lönd.

Á ferðum mannsins kynnist skildingurinn myntpeningum frá mörgum löndum, en lítið sér hann sig þó um í heiminum. Í forvitni sinni gægist hann uppúr buddunni, en ekki vill betur til en svo að hann hratar uppúr henni og villist út í óvissuna.

Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson.

H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. „Silfurskildingurinn“ er saga af þrautseigju og þolinmæði. En hún minnir okkur líka á það hvernig mismunandi gildismat getur gert það verðmæta óverulegt og öfugt. Þá skiptir mestu að vera sjálfum sér trúr og þekkja sitt eiginlega raunvirði í hjartanu.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán