Heim › ...
Silfurgengið eftir Brynhildur Þórarinsdóttir - rafbók

Silfurgengið

Rafbók
Mál og menning

Um bókina

Sirrýlei ætlar að halda gott 15 ára afmælispartí fyrir vini sína. Foreldrar hennar verða í útlöndum og planið er alveg skothelt. En smám saman flækjast málin, meira að segja amma hennar klikkar með því að gefa henni eldgamla nælu í staðinn fyrir flottu úlpuna sem hún óskaði sér.

Sirrýlei á erfitt með að halda kúlinu gagnvart vinum sínum þegar saga nælunnar og fyrri eigenda hennar, Silfurgengisins, nær tökum á henni. Bestu vinkonur hennar botna ekkert í henni og ekki batnar það þegar Sirrýlei velur nördalegasta áfangann í skólanum og lendir þar í hópi með stórundarlegum krökkum, meðal annars nýja stráknum með skrýtna nafnið og skyrhárið!

Silfurgengið er grípandi saga um vináttu og óvænt örlög. Brynhildur Þórarinsdóttir er margverðlaunaður höfundur barna- og unglingabóka og hlaut meðal annars Norrænu barnabókaverðlaunin fyrir endursagnir sínar á Íslendingasögunum Njálu, Eglu og Laxdælu.

Kynning

Hvernig virkar þetta?

  1. 1
    Kauptu bókina

    Greiddu einu sinni og bókin er þín að eilífu óháð áskriftarstöðu

  2. 2
    Sæktu Sagnaland appið

    Fáanlegt í App Store og Google Play

  3. 3
    Lestu hvar sem er

    Bókin birtist í bókahillunni þinni

-15%2.790 kr fyrir áskrifendur. Áskrifendur fá 15% afslátt af öllum bókum.