Heim › ...
Síðasti spellvirkinn – saga dansks andspyrnumanns eftir Anders Hauch Fenger - rafbók

Síðasti spellvirkinn – saga dansks andspyrnumanns

Rafbók
Mál og menning

Um bókina

Árið 1940 hernámu Þjóðverjar Danmörku og nasistar héldu dönsku þjóðinni í heljargreipum næstu ár. Talið var að Danir hefðu gefist upp án mótspyrnu þar til öflug dönsk andspyrna kom upp á yfirborðið og breytti orðspori þjóðarinnar.

Ejler Borch (f. 1925) er einn þeirra sem tóku þátt í mótspyrnunni gegn Þjóðverjum. Hann gekk kornungur til liðs við samtökin BOPA sem unnu skemmdarverk á innviðum sem nýttust hernámsliðinu. Eftir stríð starfaði hann á ferju í heimabæ sínum og fáir þekktu til fortíðar hans sem vopnaðs andspyrnumanns. Fyrr en nú.

Í Síðasta spellvirkjanum fléttar blaðamaðurinn Anders Hauch Fenger sögu Ejlers saman við frásögn af dönsku andspyrnunni og Gestapó. Útkoman er nístingsspennandi og persónuleg frásögn af stríði, dirfsku og örlagaríkum ákvörðunum – byggð á viðtölum við Ejler og fjölskyldu hans og umfangsmikilli heimildavinnu.

Hvernig virkar þetta?

  1. 1
    Kauptu bókina

    Greiddu einu sinni og bókin er þín að eilífu óháð áskriftarstöðu

  2. 2
    Sæktu Sagnaland appið

    Fáanlegt í App Store og Google Play

  3. 3
    Lestu hvar sem er

    Bókin birtist í bókahillunni þinni

-15%3.640 kr fyrir áskrifendur. Áskrifendur fá 15% afslátt af öllum bókum.