Heim › ...
Samastaður í tilverunni eftir Málfríður Einarsdóttir - hljóðbók

Samastaður í tilverunni

14 klst 35 mín
JPV

Um bókina

Þessi bók er ekki ævisaga, og varla heldur endurminningar í venjulegum skilningi, en höfundurinn framkallar í huga lesandans þennan samastað sem hún átti sér í tilverunni, hvort sem hann var í Bæjarsveit í Borgarfirði, Reykjavík, Kaupmannahöfn eða annars staðar. Umhverfi, þjóðlífi og fólki er hér lýst af lifandi nærfærni og þeim stílþrótti sem fáum er gefinn. Málfríður Einarsdóttir var sískrifandi alla ævi þó að fyrsta bók hennar liti ekki dagsins ljós fyrr en árið 1977 þegar hún var komin hátt á áttræðisaldur.

Það var Samastaður í tilverunni sem síðan hefur orðið eftirlætisbók ófárra og er hér loksins fáanleg að nýju, nú í kiljuseríu Forlagsins, „Íslensk klassík“. Alls urðu bækur Málfríðar sex talsins, flestar af sjálfsævisögulegum toga, og þykja með því skemmtilegra sem skrifað hefur verið á íslensku. Guðbergur Bergsson ritar skemmtilegan formála að bókinni.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.490 kr