Heim › ...
Saman í liði eftir Kjartan Atli Kjartansson - hljóðbók

Saman í liði

2 klst 52 mín
Sögur útgáfa

Um bókina

Þegar miðherji unglingaliðs í körfubolta hrynur niður í miðjum leik vegna óvæntra veikinda eru góð ráð dýr. Liðsfélagarnir óttast um afdrif vinar síns og draumarnir um Íslandsmeistaratitilinn eru í uppnámi, en á ögurstundu kemur öflugur liðsstyrkur úr óvæntri átt!

Saman í liði er skemmtileg og spennandi saga um mikilvægi vináttunnar, hlutverk kynjanna í samfélagi nútímans og kraftinn sem leysist úr læðingi þegar hlekkjum fortíðar er kasta á ruslahaugana þar sem þeir sannarlega eiga heima. Hér í frábærum lestri Kristins Óla (Króla) og Sögu Garðars.

Bækur Kjartans Atla Kjartanssonar fjölmiðlamanns um körfubolta hafa komið út á Íslandi og í Bandaríkjunum og fengið frábærar viðtökur. Hann hefur áratuga reynslu af körfuboltaþjálfun í yngri flokkum og hefur einnig fengis við kennslu á unglingastigi.

Saman í liði er fyrsta skáldsaga Kjartans Atla og er hún byggð á reynslu hans úr barna- og unglingastarfi.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán