Heim › ...

Um bókina
Salka Valka er ein þekktasta og vinsælasta saga Halldórs Laxness og sú sem ruddi braut hans til alþjóðlegra vinsælda. Á Óseyri við Axlarfjörð búa ólíkar mæðgur, Salka litla er stolt og sterk, en Sigurlína móðir hennar treystir alfarið á himnaföðurinn og Hjálpræðisherinn. Örlög fólksins á Óseyri eru að mestu á valdi kaupmannsins Jóhanns Bogesen, en átakatímar fara í hönd og nýir vindar blása um þjóðfélagið. Áhrifavaldar í lífi mæðgnanna eru einkum hinn ungi og mælski Arnaldur og svo Steinþór, sem sem er alger andstæða hans; frummaðurinn holdi klæddur.
Salka Valka er í senn þorpssaga og saga svipmikilla einstaklinga sem glíma daglega við tilveru þar sem ástin og dauðinn leika undir.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
- Eða kauptu á 2.490 kr
Sækja app