Heim › ...
Saklaust blóð í snjó eftir Ásgeir Hvítaskáld - hljóðbók

Saklaust blóð í snjó

4 klst 50 mín
Ásgeir Hvítaskáld

Um bókina

Átakanleg saga um misnotaða stúlku sem fæddi barn á leið yfir Oddskarðið alein í blindbyl um hánótt.

Þessi bók er byggð á sannsögulegum atburðum er gerðust á Reyðarfirði veturinn 1726. Á fjallveginum milli Reyðarfjarðar og Norðfjarðar, norðanmegin við Oddskarðið stendur Höllusteinn. Undir þessum steini fæddi bláfátæk kornung stúlka barn, alein og útskúfuð í blindhríð um hánótt. Henni hafði verið úthýst í Helgustaðahreppi þetta sama kvöld. Enginn vildi láta óskilgetið barn fæðast á sínum bæ. Eftir þetta hefur þessi brekka verið kölluð Blóðbrekka.

Í raun fjallar þessi bók um það hvernig karlmenn á Íslandi fyrr á öldum misnotuðu vald sitt til misnotkunar á konum og komust upp með það, því þeir einir skráðu söguna.

Þetta er fimmta skáldsaga Ásgeirs, en hann hefur einnig gefið út tvær barnabækur, smásögusöfn, ljóð og leikrit. Hann hefur skrifað blaðagreinar frá unga aldri og skrifaði vinsælar greinar um bjórinn á sínum tíma sem margir muna eftir. Ásgeir hefur leikstýrt átta heimildarmyndum í fullri lengd og fengið verðlaun fyrir. Einnig hefur hann gert fjórar leiknar stuttmyndir og svo eina kvikmynd í fullri lengd, sem er kultmynd í dag. Hann er þekktur fyrir að skrifa dramatískar sögur og myndrænar lýsingar. Frásögn þessi er ekki síst áhrifamikið örlagadrama í hans einstaka stíl, þar sem atburðir og persónur verða ljóslifandi. Ásgeir dvaldi langdvölum erlendis, er menntaður viðskiptafræðingur og býr nú á Egilsstöðum.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán